13.1.2012 | 09:34
Sundabraut næsta stórverkefni og það strax!
Fágar vegaframkvæmdir munu skila meiri eldsneytissparnaði en Sundabraut. Með Sundabraut inn við Elliðarárósa skapast einstök skilyrði fyrir uppbyggingu nýrrar þungamiðju fyrir Reykjavík í atvinnu og skólamálum ásamt samgöngumiðstöð og nýju sjúkrahúsi.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með Sundabraut og
nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Skýrslu stungið undir stól |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.12.2011 | 14:07
Hann styður jarðgangaáætlun Reykjavíkurborgar.
Með nýjum Landspítala við Hringbraut verður jarðgangaskipulag Reykjavíkur eina lausnin á umferðarvandanum sem spítalinn skapar, Kristján Möller styður þessa uppbyggingu ásamt öðrum þingmönnum, með því að þegja og leifa dellunni að halda áfram. Ofur heilaskemmdir borgarfulltrúar bíða spenntir eftir griljónum tonna af ókeypis möl innan úr jarðgöngum til að stækka Örfirisey með jarðgangatengingu við Sæbraut.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Styður ekki samgönguáætlun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2011 | 09:08
Hringbrautarormurinn!!!
Lifir í eigin heimi, hugsar ekki út fyrir magann í sjálfum sér og er að verða ein mesta meinsemd í Íslensku þjóðfélagi. Hans takmark er að éta allt upp sem tilheyrir heilbriðisþjónustu á landinu enda er hann bæði heyrnalaus og blindur.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Neitaði að yfirgefa spítalann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.11.2011 | 09:30
Vaða í verkefni sem þeim kemur ekkert við!
Það væri nær að ISAVIA stæði fyrir því að flytja millilandaflugið til Reykjavíkur og spara þannig allan þennan rútukosnað. 2.500.000 farþegar þurfa núna að komast með bílum og rútum til Keflavíkur.
Núna er rétti tímin til að stofna til samkeppni um að útfæra Reykjavíkurflugvöll ásamt gjaldþrota háskólabyggingu fyrir millilandaflug. Stærsti hluti flugs fer til Evrópu sem myndi styttast um 40km.
Borgin getur snúið sér að uppbyggingu á Höfðanum sem hentar miklu betur en Vatnsmýrin.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Isavia býðst til að taka yfir flugrútuna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.11.2011 | 17:49
Járnbrautarhugmynd til sölu!!!
Sömu jólasveinar sem seldu jarðgangahugmyndir um alla borg eða einhverjir náskildir þeim vilja núna selja járnbrautahugmynd af Keflavíkurlest, ráðamenn kaupa þessa hugmynd öruklega á hundruðmiljóna.
Svona lest þarf ekki að fara nema eina ferð á viku.
Notum frekar Vatnsmýrina undir millilandaflugvöll og tökum Höfðan undir nýjan miðbæ.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Kanna á ný kosti raflestar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt 28.11.2011 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2011 | 10:29
Háskóla sukk af hæðstu gráðu!!
Háskóla sukk af hæðstu gráðu miklu stærra en drullumall í borgarskipulagi, enda fjármálastjórinn hækkaður verulega í tign. Af fréttinni að dæma virðist skólinn einungis ráða við 1/3 af byggingarkosnaði.
Það má snúa þessu mikla tapi í þjóðhagslegan ávinning með því að breyta þessari stóru byggingu í flugstöð okkar allra landsmanna fyrir bæði utanlands og innanlandsflug.
Með því að færa allt utanlandsflug til Reykjavíkur mætti spara heilu skipsfarmanna af eldsneyti, flug til Evrópu myndi styttast um 40 kílómetra og allur akstur vegna flugs í Keflavík myndi leggjast af.
|
Kröfuhafar afskrifa milljarða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
11.11.2011 | 09:59
Vatnsmýrar-Drottningin
Hanna Birna var meðlimur í dómnefnd og formaður skipulagsráðs þegar Vatnsmýrasamkeppnin var unnin, skipulagshugmynd sem snérist um að koma flugvellinum burt úr borginni.
Vatnsmýrasamkeppnin er afrek Hönnu Birnu gerð án nokkurra faglegar þekkingar, undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Farið var í þessa samkeppni eftir einar fáránlegustu kosningar sem haldnar hafa verið, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hvatti alla til að hunsa kosninguna.
200.000.000 voru í boði fyrir bestu tillögunar um að koma flugvellinum burt úr Reykjavík.
Utan á þessa samkeppni er núna verið að hnoða stærstu skipulagsmistökum allra tíma í höfuðborginni .
Myndir frá 1 -9 sýna hugsanlega þróun við færslu Landspítala á Höfðann.
|
Fagna framboði Hönnu Birnu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2011 | 10:22
Mistök á mistök ofan!!
|
Vilja að dráttarbrautin verði áfram |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
9.10.2011 | 22:26
Deiliskipulag eða svæðisskipulag?
Skipulag sem hefur áhrif á önnur sveitafélög kallast svæðisskipulag en ekki deiliskipulag, með þessari framkvæmd er verið að yfirlesta aðra af tveimur samgönguleiðum út á Seltjarnarnes.
En gæti ekki verið að eitthvað af stóru lóðunum á Höfðanum tilheyri skilanefndum bankanna og sé þá nánast í eigu ríkisins. Það hlítur að skipta höfuðmáli að velja spítalanum stað þar sem helstu umferðaræðarnar mætast og liggja inn í borginna.
Myndir frá 1 -9 sýna hugsanlega þróun við færslu Landspítala á Höfðann.
|
Telja deiliskipulagið óviðunandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
7.10.2011 | 08:33
Og umferðin fer endanlega í klessu!!!
Vandamálið mun stærra en innan lóðarinnar. Árin fyrir hrun var umferðin á Hringbraut langt yfir þolmörkum, það fundum við ýllilega sem unnum niðri í bæ.
Nú þarf að sparka rækilega í rassgadið á þessum Vatnsmýrar - Þekkingaþorps vitleysingum sem hafa yfirráð á botnlausu fjármagni til að hanna alla þessa dellu og berja á puttana á þeim svo blæði úr.
Það verða aldrei nein Öskjuhlíðargöng, Sundagöng eða ókeypis möl innanúr jarðjöngum til að stækka Örfirisey með jarðjangatengingu við Sæbraut.
Reykjavík verður áfram með flugvöll og hann verður um aldur og æfi áfram í vatnsmýrinni.
Það er komin tími á að arkitektar og verkfræðingar hætti að stökkva á allar þessar rugglu, bullu hugmyndir sem þeir vita manna best að verða aldrei að veruleika.
Höðuðborg okkar landsmanna þarf að hugsa 50-100 ár fram í tímann, með eins hagkvæmum samgöngum og hægt er.
Á þessu myndbandi er módel sem ég gerði af Höfðahverfi sem sýnir hvernig Sundabraut, Landspítali og samgöngumiðstöð gætu breytt borgarlandslæginu. Fjármálahverfið er núna risið í Borgatúni og verður ekki breytt.
|
Of mikið flæmi innan nýs spítala |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.9.2011 | 21:41
Landspítali - deiliskipulag athugasemdir fyrir 1. október.
Ábendingar og athugasemdir vegna deiliskipulagsdraganna skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 1. október 2011. Sjá á www.nyrlandspitali.is
Ef borgin fær engar vitrænar athugunarsemdir á deiliskipulag Landspítala telst skipulagið samþykkt, síðasti dagur að skila inn athugasemdum er núna á föstudaginn.
ER ÞETTA TÓM STEYPA? byggð á hugmyndum um þekkingarþorþ í Vatnsmýri með ótakmarkað fé til að bulla hlutunum áfram án nokkra vitræna hugsunar.
Landspítala í Umhverfismat vegna stærðar sinnar . Kosnaður vegna
umferðarmannvirkja ekki talinn með í kynningu á nýrri byggingu. Hér er
um að ræða mikið inngrip í borgarlandslagið sem er umsvifamesta
deiliskipulag og það viðkvæmasta sem nokkru sinni hefur verið kynnt
fyrir borgarbúum. Mætti benda á að þrátt fyrir aukaframlag frá ríkinu vegna almenningssamgangna er ólíklegt að sú aðgerð komi í veg fyrir þörf á umferðarmannvirkjum á kostnað ríkis.
1. Röskun á lífsgæðum þeirra sem búa vestan spítalans þar sem
samgönguleiðir fara yfir þolmörk. Það virðist því þurfa að breyta
ferðavenjum starfsmanna LSH svo þeir komist í vinnuna, þetta á raunar
við alla vestan spítalans. Það má benda á að háskólanemar fengu ókeypis strætókort - þau nýttu sér fáir
2. Jarðgangaskipulag Reykjavíkurborgar er hugsanlega ekki vistvænasta
leiðin sem er í boði, en á því aðalskipulagi á að reisa nýjan
Landspítala, mjög líkklega mætti draga úr umferð með öðrum hætti og
stytta vegaleindir borgarbúa.
3.Uppbygging austar í borginni ekki verið skoðuð af borgaryfirvöldum
eða gerðir umferðarútreikningar. saman ber að allar samkeppnir síðasta
áratug í skipulagi snúa að vesturbænum ásamt jarðgangalausnum.
Jafnvægi milli búsetu og vinnustaða íbúa vantar ásamt útreikningum um
svokallaðar þyngdarmiðju búsetu og vinnustaða. Þyngdarmiðjur eru reiknaðar útfrá allri borginni - það ætti að reikna miðjur útfrá landfræðilegri skiptingu borgarinnar í austur og vesturhluta sem skiptist með Elliðaárdalnum
4. Bráðveikum sjúklingum innan borgarmarka mismunað verulega vegna
vegaleindar að komast á neiðarmótöku, Hringbrautin afleitur staður
fyrir þá sem koma inn í borgina eftir Vesturlandsvegi og
Suðurlandsvegi, jafnvel Keflavíkurvegur er ekki í góðri tengingu við
Hringbraut. Óska eftir upplýsingum um ferðatíma sjúklinga og benda á að það koma ekki allir bráðveikir með sjúkrabíl eða þyrlu
5. Byggja við hlið starfandi sjúkrahús með veiku og deyjandi fólki er
mjög vandasamt, eykur kosnað. Það er gert ráð fyrir mikilli jarðvinnu - þ.e. mikið af byggingum eru neðanjarðar, þannig að það þarf að fjarlægja klöpp með sprengingum og fleygun - það veldur titringi og hávaða. Þegar viðkvæmar aðgerðir eru framkvæmdar - t.d. hjarta og taugaaðgerðir þarf væntanlega að stöðva framkvæmdir á meðan. það var reynt að byggja á lóðinni sbr. K-bygging og göng sem tengjast elghúsi ofl. - Er búið að taka tillit til þeirrar reynslu við þetta verkefni?
6. Blekkingar byggingarnefndar. Nánas alla athugasemdir fagaðila sjást
ekki á vef NLSH eins og skýrsla danska ráðgjafafyrirtækið Ementor, White arkitektar, skýrsla VSÓ (verðlagning húsnæðis ofl). Vantar endurskoðun staðarvals sem mikið er talað um sem átti að hafa verið gert 2006 eða 2007 - hvar er það?
Hér er eitt dæmi, frétt af vef nýs Háskólasjúkrahús við Hringbraut frá málþinginu 14. desember 2009 sem Landssamtök lífeyrissjóða birta nánast óbreitt. Á fréttinni sést að það á alveg að hunsa allt sem fagaðilar höfðu fram að færa á fundinum.
Guðmundur Freyr Úlfarsson Samgönguverkfræðingur hjá Háskóla Íslands var með útreikning á væntanlegum umferðarvandamálum, ekki orð um það í fréttinni.
Guðrún B. Karlsdóttir, sjúkraliði og byggingarverkfr. BSc, MSc nemi í sjúkrahússkipulagi fór í gegnum skipulag sjúkrahúsa og dr. Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfræðingur og lektor L.b.h.Í fór yfir þau skipulagsrök að spítalinn ætti að byggjast í austurborginni.
Það er ekkert minnst á alla þá fagaðila sem rökstuddu að Hringbrautin væri röng staðsetning.
Það er látið líta út að G Oddur hafi verið eini fagaðilinn ásamt byggingarfulltrúa.
Niðurstaða:Vegna stærðarsinnar krefst verkefnið nýss svæðisskipulag höfuðborgarsvæðissins.
Kosnaður vegna samgöngubóta lendir á sömu skattgreiðundum og spítalinn, verður að skoðast í samhengi.
Þjóðfélagslega séð verður að skoða staðsetningu Landspítalans með vistvænni og hagkvæmastu staðsetningu eins og hægt er.
Leitast verður við að draga úr ferðaþörf með blandaðri byggð og góðum tengslum nýrra hverfa.
______________________________________________
Það vantar svör við ýmsu!!!!
1. Eru borgarfulltrúar fastir út í mýri vegna lóðar sem hún gaf Háskóla Íslands 1961 og hugmynda um þekkingarþorp? Reykjavíkurlistinn vill þekkingarþorp í Vatnsmýri
2. Hafa farið hátt í þrjú þúsund milljónir í vangaveltur um hönnun einstakra bygginga nýs Landspítala án þess að almennileg, forsvaranleg staðarvalsgreining hafi verið gerð? (Gestur Ólafsson arkitekt og skipulagsfræðingur á visi.is)
3. Verður ástandið á Miklubraut óviðunandi verði ekki af gerð Sundabrautar? (Gestur Ólafsson arkitekt og skipulagsfræðingur á visi.is)
4. getur verið að umferðarvandin sem skapast við starfsemi nýss Landspítala komi framkvæmdarnefndini ekkert við? (Íbúafundur um Nýjan Landspítala)
5. Af hverju var Íbúafundur um Nýjan Landspítala ekkert auglýstur ?
6. Starfsemi Landspítalans fer nú fram á 17 stöðum í nærri 100 húsum, verður þessu öllu hrúað niður á Hringbraut?(Drög að nýju deiliskipulagi)
7. Í ljósi stærðarinnar undrar það mig hversu lítið um þetta er fjallað almennt.(Hilmar Þór Björnsson arkitekt blogg:)
Landspítalinn þarf að hugsa út fyrir rammann)
Landspítali – Öskubuskueinkenni
8. Er Borgarspítalalóðin betri kostur? Höfundur: Örn Þór Halldórsson, - arkitekt faí,
Samantekt
úr lokaskýrslu Ementor
um Landspítala – háskólasjúkrahús
21. september 2001
9. Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri, á sæti í umferðarhópi sem leitar lausna á vandamálum sem skapast þegar umferð þyngist við Landspítalann, hefur hann lausnina? ruv.is
10. Getur verið að það megi stytta vegalendir að spítalanum um 200 þúsund kílómetra á dag og spara borgarbúa um 20.000lítra af eldsneyti á dag með færslu austar í borginni? Vegalengdir að Landspítala styttast um 200 þúsund km á dag við færslu inn á miðju borgarinnar.
11. Stenst staðsetning við Hringbraut umhverfismat ef annar staður gæti sparað borgarbúa umtalsverðan tíma og eldsneyti?
12. Getur verið að það þurfi ekki Öskjuhlíðargöng, Sundagöng eða stokka í Reykjavík ef spítalinn yrði byggður austar í borginni.
Myndir frá 1 -9 sýna hugsanlega þróun við færslu Landspítala á Höfðann.
13. Það sjá allir að þessi stærð af spítala mun hafa veruleg áhrif á umferð Hringbrautar á álagstímum enda viðurkent af byggingarnefnd spítalans, er þetta þá ekki að falla undir svæðisskipulag þar sem lífsgæði Seltjarnarnes rýrna. Framkvæmd sem hefur áhrif á önnur sveitafélög fellur ekki undir deiliskipulag heldur svæðisskipulag.
|
Helgi í Góu opnar nýjan stað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt 2.10.2011 kl. 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2011 | 13:09
Vegalengdir að Landspítala styttast um 200 þúsund km á dag við færslu inn á miðju borgarinnar.
Miðað við að deila ferðum á Landspítala við Hringbraut jafnt á höfuðborgarsvæðið. Talið er að sameinað sjúkrahús við Hringbraut dragi til sín 40 - 60 þúsund ferðir á dag.
Nú búa yfir 60% austan og sunnan við gatnamótin Miklubrautar og Sæbrautar, en aðeins 20% búa vestan við Landspítala á Hringbraut eða í nágreni. Fyrir restina yrði vegalengdin svipuð.
Ef að nýtt sjúkrahús rís á Höfðanum en ekki við Hringbraut styttast vegalengdir 60% íbúa en lengjast hjá 20% sem þíðir 40% minni akstur. Frá Höfða að Hringbraut eru 5km sem gera 10km
á ferð.
40% af 50 þúsund ferðum eru 20 þúsund ferðir eða 200.000 km á dag.
Ef meðaleyðsla er 10lítrar á hundrað í borgartraffík gerir það 1lítir á 10 km sem eru þá 20.000 lítrar á dag sem staðsetningin við Hringbraut kostar. Einhverjir koma í strætó eða gangandi sem lagar þetta dæmi eitthvað.
Ef samgöngumiðstöð fer á höfðann verður dæmið enn betra.
Myndir frá 1 -9 sýna hugsanlega þróun við færslu Landspítala á Höfðann.
|
Litlar væntingar meðal landsmanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2011 | 23:23
Lífeyrissjóðirnir best varðveittir í nýjum Lanspítala.
Lífeyrissjóðirnir best varðveittir í nýjum Lanspítala ásamt íbúðum og annarri aðstöðu fyrir eldri borgara.
Auðvita verða þessir peningar aldrei borgaðir til baka, en mun betri lausn en að afhenda þá útrásar
víkingum og öðru glæpahiskji.
En í allri umræðuni kemur hvergi fram hvernig á að fjármagna öll umferðarmannvirkjin, Öskjuhlíðargöng, Sundagöng, göng undir Kópavogin og Miklubrautina í stokk og svo er það óskiljanlega af hverju eiga allir að þvælast í og úr vinnu í gegnum öll þessi jarðgöng þegar besta byggingarlandið bíður nánast ónotað austar í borginni.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
Landspítali eða Háskólasjúkrahús?
Höfundur: Örn Þór Halldórsson, - arkitekt faí,
|
„Eins og Dúpló við hlið Legó“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samgöngur | Breytt 22.9.2011 kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2011 | 22:08
Nýtt ranghalasjúkrahús á röngum stað, Íslensk hönnun!
Svona sjúkrahús er hvergi í veröldinni byggt í dag og það vita allir hönnuðir. Þetta sjúkrahús spannar yfir allt of mikið flatamál.
Það er löngu komin tími á að hönnuðir sameinist um að viðurkenna staðreyndir um þetta sjúkrahús frekar en að bítast um hver eigi að fá verkið.
En flestir arkitektar og hönnuðir virðast vilja fara einföldu leiðina til að ná sér í vinnu.
1. Þetta sjúkrahús skapar allt of mikið gönguálag á starfsfólk.
2. Flutningur bráðveikra sjúklinga erfiður og hættulegur eftir löngum göngum mun auðveldara að þjónusta sjúklinga í lyftum á milli deilda.
3. Að sjúkrahúsið og háskólinn þurfi að vera á sama blettinum er upprunnið af 50ára gömlu kjaftæði.
4. Aðkoma sjúkrabíla erfið og vegaleind
úr austurborginni allt of löng og sein farin.
5. Reykjavíkurborg getur ekki staðið við núverandi aðalskipulag með jarðgöngum undir Öskjuhlíð og áfram undir Kópavog að Breiðholti og smárahverfinu í Kópavogi.
6. Lausnir í stokkum og göngum kosta meira en spítalinn og geta aldrei komið í staðin fyrir vel hannaðan spítala í miðri borg.
7. Inn á þetta deiliskipulag vantar allar byggingar sem Háskólinn ætlar að reisa á lóð Umferðarmiðstöfðarinnar. Einnig vantar allar lausnir á umferðamannvirkjum ásmt kosnaði og tímaplönum.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Nýr spítali eins og Kárahnjúkavirkjun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.9.2011 | 11:59
Með smá verkviti má lækka sársaukaþröskuldurinn verulega.
Með uppbyggingu nýrra þungamiðju í miðri borg mætti auðvelda borgarbúum verulega að komast til og frá vinnu, með byggingu nýs sjúkrahús á Höfðanum má einnig spara alla jarðgangalagningu í Reykjavík.
Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.
|
Fleiri ganga og hjóla og fara lengra en áður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |




gudni.is
Jón Svavarsson
Bjarni Harðarson
Einar Kristinn Guðfinnsson
Kolbrún Baldursdóttir
Guðmundur Ragnar Björnsson
Torfusamtökin
Ágúst H Bjarnason
Jóhann Steinar Guðmundsson
Valur Stefánsson
Ingi Björn Sigurðsson
nei
Jón Magnússon
Hallur Magnússon #9541
Marinó Már Marinósson
Marta B Helgadóttir
Einar Bragi Bragason.
Þorsteinn Siglaugsson
Benedikt V. Warén
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
Árni Þór Sigurðsson
Kári Harðarson
Margrét Sverrisdóttir
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Dofri Hermannsson
veffari
Alexander
Birkir Jón Jónsson
Charles Robert Onken
Daníel Sigurður Eðvaldsson
Davíð Sturluson
Egill Jóhannsson
Eyþór Arnalds
Gísli Tryggvason
Guðjón Baldursson
Hannes Björnsson
Helgi Jóhann Hauksson
Ingólfur
Jón Snæbjörnsson
Júlíus Björnsson
Júlíus Valsson
Ketill Sigurjónsson
Kolbrún Jónsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Lára Hanna Einarsdóttir
Lilja G. Bolladóttir
Ómar Ragnarsson
Reynir Jóhannesson
Sigríður Jósefsdóttir
Sigurður Valur Sigurðsson
Sigurður Þórðarson
Sumarliði Einar Daðason
Vefritid
Vilborg Anna Garðarsdóttir
Vilborg G Hansen
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir









