Sundabraut næsta stórverkefni og það strax!

Á samdráttartímum á opinbera að halda uppi atvinnu og í fjárskorti á að framkvæma það sem gefur mestan sparnað.

Fágar vegaframkvæmdir munu skila meiri eldsneytissparnaði en Sundabraut. Með Sundabraut inn við Elliðarárósa skapast einstök skilyrði fyrir uppbyggingu nýrrar þungamiðju fyrir Reykjavík í atvinnu og skólamálum ásamt samgöngumiðstöð og nýju sjúkrahúsi.

Myndir 1-9 sýna hvaða þróun gæti orðið með Sundabraut og nýjum Landspítala á Höfðanum, skoðið myndirnar fram og til baka.


mbl.is Skýrslu stungið undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ögmundur er fyrsti samgönguráðherrann í langan tíma sem kemur frá höfuðborgarsvæðinu. Ætli séu ekki liðin hátt í 25 ár frá því að Matthías Mathisen úr Hafnarfirði var samgönguráðherra. Því miður var lítið eftir hann en vonandi bætir Ögmundur um betur.

Sundabraut kom fyrst á dagskrá fyrir um 30 árum eða svo og var fullyrt kringum 25 árum að ekki mikið seinna en 2006 yrði farið að aka eftir henni! Ekki hefur verið byrjað enn á henni, svo sorglegt sem það nú er.

Guðjón Sigþór Jensson, 13.1.2012 kl. 09:50

2 identicon

Ertu þá búinn að fá vitleysingana í ráðhúsinu til þess að komast að endanlegri niðurstöðu á staðsetningu?

Jón Ingi (IP-tala skráð) 13.1.2012 kl. 16:45

3 Smámynd: Sturla Snorrason

Ef vitleysingarnir í Ráðhúsinu hefðu ekki verið að þvælast fyrir með jarðgangakröfur, heldur vegagerðina láta ráða með Eyjaleið ódýrustu og hagkvæmustu leiðina fyrir alla aðila væri sennilegt að Sundabraut væri komin núna.

Það væri fróðlegt að vita hvaða leið þeir vilja fara í dag.

Sturla Snorrason, 13.1.2012 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband