Færum vinnu og skóla austur fyrir Kringlumýrarbraut!!!

Skipulag til næstu 50 ára er það sem vantar, þetta tjösluskipulag fyrir 101 er löngu orðið handónítt. Það gengur aldrei upp að byggja sjúkrahús, samgöngumiðstöð og skóla vestur í bæ. 70% af fólkinu býr í austur hluta borgarinnar og öll aukning er í þá áttina.

Það var sami Gísli Marteinn sem tók þátt í því að staðsetja rútustöð (samgöngumiðstöð) í Vatnsmýrinni, sem þíðir að ca. 70% farþega fer í leigubílum vestur í bæ og svo í rútum sömu leið til baka.

Háskóla er dembt niður á flugvöll þar sem ætti að vera flugstöð. Enn hægt að breyta í flugstöð.

Nú þegar öll þessi þvæla í 101 er farin á hausinn á að nota tækifærið og taka vinkilbeygju í skipulagsmálum höfuðborgarinnar.

Vermda gamlabæinn og reisa nýja þungamiðju í miðri borg.


mbl.is Miklabraut í stokk að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta er það sem ég er búinn að vera að segja lengi.  Það þarf að færa atvinnusvæðin nær íbúðasvæðum í staðinn fyrir þessa þjóðflutninga sem eru á hverjum degi.  Háskólinn í Reykjavík átti aldre að fara vestur fyrir Kringlumýrarbraut.  Landsspítalinn á að fara úr miðbænum.  Bara þessar tvær aðgerðir létta stórlega á Miklubrautinni.  Svefnhverfaskipulagið hefur beðið skipbrot og þarf að hugsa upp á nýtt.

Marinó G. Njálsson, 6.11.2008 kl. 01:17

2 Smámynd: Sturla Snorrason

Takk fyrir innlitið Marinó. Gott að vita að ég er ekki eini maðurinn í heiminum með þessa skoðun.

Sturla Snorrason, 6.11.2008 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband